„Mér er skapi næst að hætta bara. Þá skulu menn reyna að fá almennilegt fólk inn á þing þar sem ekki er borgað fyrir menntun eða reynslu. Ég fæ ekkert borgað fyrir menntunina mína, átta ára háskólanám, og er búinn að borga átta milljónir [í fimm prófkjörum] fyrir að fá þessa vinnu. Þetta er galið,“ segir Pétur Blöndal í samtali við Fréttablaðið í morgun þegar hann svaraði fyrir að hafa ekki gert grein fyrir styrk sem hann fékk. Segir einn mann hafa styrkt sig og að hann hafi ekki haft tíma til hringja í manninn og spyrja hvort það væri honum að meinalausu að Pétur upplýsti um styrkinn.
Þjóðin og þingið komast af þó Pétur hætti. Hann var í stjórnarflokki allan versta tímann í efnahagssögu þjóðarinnar. Komumst innst í öngstrætið með Pétri. Get ekki ímyndað mér að það verði óyfirstíganlegt þó hann hverfi til annarra starfa.
Pétur stundar núna að tala um þá sem tóku gengislán að þeir hafi allir keypt jeppa. Þröngsýnn kall.
-
Síður
-
Flokkar
-
Sarpur
Blogroll
-
RSS Feeds
-
Meta
Ummæli
Hann getur ekki jafnað sig á þessu með sparisjóðina.
Hann sagði alveg það sama í Háskólabíó á fundi hjá
Gunnari leikara. Hann var varla búinn að sleppa orðinu,
þegar salurinn stóð upp sem einn maður og klappaði.
Það má vera að hann sé með þrönga sýn. Hann er hins vegar einn af þeim mjög svo fáu þingmönnum sem þora að segja það sem aðrir eru að hugsa. Það er alveg á hreinu að stór hluti þingmanna er að hugsa nákvæmlega þetta. Stór hluti af þeim sem kannski hafa áhuga á að fara í þingmennsku eru að hugsa þetta. “Mannauðinum” inn á Alþingi hefur hrakað gríðarlega. Við munum standa uppi með 63 hálfvita inn á þingi ef hlutirnir halda áfram með þeim hætti sem þeir hafa gert. Ætli þetta sé ekki um 50/50 núna. Þökk sé íslenskum kjósendum tók hálfvitatalan stórt stökk upp á við í síðustu kosningum. Það er líka þannig að íslenskir fjölmiðlamenn eru líklega þeir lélégustu sem maður sér. Þeir kóa alltaf með í stað þess að vera gagnrýnir og stunda alvöru blaðamennsku.
Gera bara eins og þú hefur lagt til Sigurjón. Ráða einhverja djókara inn á þing sem þora ekki að taka á einu eða neinu, en benda á einhverja aðra.
* ESB málið: allt í uppnámi eftir ummæli breta í gær á þinginu
* Icesave: allt pikkfast þar.
* Skuldavandi heimilanna, ekkert gerst þar heldur
* Sjávarútvegsstefnan. Allt situr fast þar
* Stóriðjustefnan. Þar er allt kengfast.
* Dómur um gengistryggð lán. Ríkisstjornin bendir á aðra.
* Allt of hátt launaðir ríkisstarfsmenn. Hvað er að gerast?
Það er eins og fjölmiðlar vilji ekki eða nenni ekki að ræða stóru málin. Sigurjón er fulltrúi þessa hóps. Af hverju neita fjölmiðlamenn að ræða þau mál sem mestu skipta? Af hverju neitar stjórnarmeirihlutinn að takast á við vandamálin, sem hrannast upp hvert af öðru?
Gott að bera saman muninn á t.d. nýrri ríkisstjórn í bretlandi og þessari sem nú er búin að sitja hér í rúmt eitt og hálft ár. Þar var einfaldlega birtur listi yfir þá ríkisstarfsmenn sem eru með gríðarlega há laun, viku eftir kosningar. Hér hefur enn ekkert verið gert.
Hvað með útgjöld ríkissins? Núna á eftir verður sett fram neyðaráætlun bresku ríkisstjórnarinnar, niðurskurður, launafrysting etc. Hvað er ríkisstjórnin hér á landi að gera annað en að ýta á undan sér vandanum, og lofa einhverju sem ekki er hægt að standa við, upp í ermina á sér?
Það flytja að jafnaði 1000 íslendingar af landi brott á mánuði. Það eru kannski helstu sýnilegu verk þessarar ríkisstjórnar. Ef ekki hefði verið fyrir flótta 15-20 þús. íslendinga til útlanda, þá væri atvinnuástandið hér á landi mun verra en það í rauninni er, en auðvitað hafa þessir séð og heyrt blaðamenn ekki komðið auga á þetta.
Ég er sammála því að Pétur er einn fárra þingmanna sem talar oftast skv. sinni sannfæringu.
En hver bað hann um að eyða 8 eða þaðan af fleiri milljónum í prófkjör? Ekki man ég til þess að hann hafi spurt mig eða aðra kjósendur hvort hann ætti að eyða svo og svo miklu í aðdraganda kosninga.
Það var hans val að sækjast eftir kjöri, hans val að eyða til þess milljónum króna og hans val að óska eftir styrkjum frá einstaklingum og/eða fyrirtækjum.
Og sem opinber persóna sem fer að hluta til með löggjafarvaldið þar sem ákveðið er í hvað okkar skattpeningar fara þá ber honum að mínu mati að gefa upp sína styrktaraðila og það helst fyrir kosningar. Hverjir þeir eru gæti haft mikil áhrif á það hve mörg atkvæði hann ynni eða tapaði í kosningum.
Afnám eftirlaunafrumvarpsins og almenn kjaraskerðing þingmanna og æðstu embættismanna er lýðskrum af verstu sort og til þess fallið draga þingið niður í meðalmennskuna. Sumir segja að þingið eigi að vera þverskurður þjóðarinnar. Því er ég ekki sammmála. Þingið á að vera þverskurður velmenntaðra afbragðsmanna og kvenna.
Sjónhverfing. Hækkuðu dagpeninga og sporzlur á móti.
Sigurjón þú ert á Baugslaunum og varst fyrir hrun.
Þú leggur Pétur Blöndal í einelti og segir honum að hætta – á sama tíma og þú skrifar ekki um hvernig eigendur fjölmiðils þína ryksuguðu upp allt lausafé landsmanna – banka, lífeyrissjóða, spaeisjóða ofl sjóða.
Afhverju ferðu offari gegn Pétri – þegar mun meira áríðandi mál eru ekki tekin fyrir hjá Fréttablaðinu?
Enn halda hægrimenn áfram að tala digurbarkalega eins og fortíðin hafi aldrei verið til. Þrátt fyrir gífurlega mannkosti þessara manna og hátt menntunarstig,tókst þeim samt að setja heila þjóð á hausinn. Væla síðan yfir því að það gangi ekki nógu fljótt að moka upp skítinn eftir þá.
@Sólon Íslandus, já þeir eru duglegir við belgja sig út Baugsdindlarnir og það verður að segjast eins og er að Sigurjón er ekki merkilegur pappír.
Hvað, er Júlli farinn að tala við sjálfan sig?