Lánafyrirtækin töpuðu málinu. Einstaklingar hafa verið neyddir til að borga af lánum sem voru ólögmædd. Eignir hafa verið teknar af fólki. Með rangindum. Hvað sem hver segir er niðurstaða Hæstaréttar komin. Neyðarfundir skjaldborgarstjórnarinnar er um lánafyrirtækin. Nú liggur á.
Lánafyrirtækin gerðu mikið með óefnislegar eignir, sinna og þeirra sem fengu það sem þeir vildu. Þegar þurfti að sækja á óbretta borgara var annað uppi á teningnum. Þá var allt í lagi að valda óefnislegum skaða, sálarangist, andvöku, veikindum, upplausn heimila svo ekki sé talað um upptöku eigna, allt vegna ólögmætra lána.
Þeir einstaklingar sem eiga í hlut eru með sterkari stöðu en áður. Þeir eiga að láta fyrirtækin sækja á sig með dómsmálum. Nú virðist skjaldborgarstjórnin vera á tánum. Þar er ekki sama hver þjáist. Á meðan fundin er leið til að halda fólki í vondum málum er hlé á fantaskapnum.
-
Síður
-
Flokkar
-
Sarpur
Blogroll
-
RSS Feeds
-
Meta
Ummæli
Já en þar sem lögfræðin endar tekur íslenzk sveitapólitík við.
Ekki gleyma verkaðlýðsrekendunum þetta er ekki síður áfall fyrir þá.
Ekkert sérstaklega góð meðmæli með Norrænu velferðarstjórninni en satt og rétt hjá þér Sigurjón
Fantaskapurinn liggur hjá þeim sem bera ábyrgðina á þessum ólöglegu lánum sem fyrrverandi ríkisstjórn lét viðgangast í mörg ár. Það bætist stöðugt í skítasarpinn sem sú ríkisstjórn skildi eftir sig. Vonandi tekst Norrænu velferðarstjórninni að bjarga því sem bjargað verður.
Þeir sem tóku lágvaxtalánin voru klókir. Skynsamir. Jena-gengi hefur alltaf verið eftirsótt. En tryggingar “fagmannana” misheppnuðust.
Og þeir töpuðu.
MÉR FINNST HVERNIG ÞÚ ORÐAR ÞETTA ÖÐRUVÍSI OG BARA SNILLD!!!
Og nú hefur komið í ljós að íbúðarlánasjóður var líka að veðja.
Það voru allir að veðja gegn lántökum. ísl-erl…
Hvar eru mörkin fyrir forsendubrest. ???
Hvernig er það ef t.d. gengistryggð íðbúðalán eru líka ólögleg, hvað er þá með sýslumenn sem hafa boðið upp hús manna, væntanlega ólöglega? Verða þeir að greiða til baka þóknunina og hugsanlega að segja af sér vegna starfsafglapa?
Alltof satt og rétt hjá þér. Angistin og vonleysið sem mjög stór hluti samfélagsins hefur þurft að ganga í gegnum vegna stökkbreyttra lána á stóran þátt í því að fólk er að flýja land.
Þetta er ungt menntað fólk fólk. Það hefur stofnað heimili, eignast börn, fjárfest í húsnæði og bíl, og í mörgum tilvikum fjárfest í atvinnutækjum með sjálft sig í persónulegri ábyrgð fyrir fjármögnun einkahlutafélaga sinna. Núna eru heimili þeirra seld á nauðungasölum, það hrakið í gjaldþrot og er úthrópað sem óreiðufólk. Þetta eru skattgreiðendur og börnin þeirra eru skattgreiðendur framtíðarinnar. Og þegar skiptastjórar hafa lokið sér af er það farið að greiða skatta í öðrum löndum og mun aldrei koma aftur í skuldaánauðina á íslandi.
Við höfum ekki efni á þessari blóðtöku.