DoddurLas Moggann. Þar kemur fram að ef allt fer á besta veg verður skaðinn af Icesave um 370 milljarðar. Það er ef 95 prósent innheimtast. Það er ámóta há upphæð og gjaldþrot Seðlabankans, undir stjórn Davíðs, kostaði þjóðina. Ef ég man rétt hvað gjaldþrot Seðlabankans var mikið.



13 Responses to “Davíð og Icesave”  

  1. 1 Jón Þór Helgason

    Er þá í lagi að tapa 370 milljörðum í viðbót?

    Þú er allavegana á þeirri skoðun að það eigið að hlýta þessu.
    villtu kommenta á skýslu seðlabankastjóra Evrópska seðlabankans?

    Hún hefur verið falinn af stjórninni og af fjölmiðlum.
    kv.
    Jón Þór

  2. 2 Hafsteinn

    Sem kom til vegna þess að Seðlabankinn var að sinna hlutverki sínu sem lánari til þrautavara.

  3. 3 Björn

    Og Do á sína fylgismenn enn. Do hlýtur að ratast að segja eitthvað af viti þ.s. hann talar í hringi eins og Eiríkur Fjalar. Hann hefur kostað þjóðina nóg og á að hafa vit á því að þegja. Spillingarraftur fram í fíngurgóma.

  4. 4 ala

    Þettað er nú meira hatrið þolið þið ekki að sett séu fram rök í þessu máli,heldur tekið dæmi hann gerði þettað og hann gerði hitt eins og lítil börn

  5. 5 Grétar

    …seðlabankinn getur prentað krónur – ekki erlendan gjaldeyri þannig að það er ekki hægt að bera þetta saman. Granted, ef seðlabankinn fjármagn í umferð um þetta háa upphæð, þá ættu vextir að lækka og krónan að veikjast en það er víst komið nóg af veikingu á þeim bænum.

  6. 6 Orn

    Bretar og Hollendingar hafa ekki nokkra trú á að 95% innheimtist af kröfum LÍ. Þeir vita betur. Eins að yfirvofandi er fjöldi dómsmála af hálfu kröfuhafa. Að sjálfsögðu fara þeir því fram á ríkisábyrgð.
    Við erum liðleskjur með með því að samþykkja þennan samning. Við erum í skítnum nú þegar og því enginn ástæða til að láta moka yfir okkur líka. Höldum þessum bara opnu, tefjum málið, höldum áfram viðræðum en einbeitum okkur fyrst og fremst að uppbyggingu landsins. Icesave er enginn þröskuldur þar. AGS og Noregur sem dæmi búin að lýsa því yfir að icesavesamningur tefji ekki lánafyrirgreiðslur…..eru þau kannski að ljúga.

  7. 7 SJ

    munurinn á tapi seðlabankans og icesave er að seðlabankinn tapaði krónum, seðlabankinn getur prentað krónur en ekki evrur og pund. Icesave er því allt annað og miklu verra mál.

  8. 8 steini

    það er ekki til nein skýrsla evrópska seðlabankans eins og kom fram í fréttum útvarps í dag.

  9. 9 skattmann

    Þeir sem að halda 95% fram eru einfaldlega að segja ósatt.
    Þessi tala er ekki byggð á neinni skoðun á eignasafninu.

    Hefur verið hrakið hér á netinu:

    http://fridjon.eyjan.is/2009/06/24/icesave-samantekt-peturs-richters/

  10. 10 lesandi

    Skýrsla franska seðlabankastjórans sem ríkisstjórnin OG fjölmiðlar eiga að hafa “falið” eins og Jón Þór gefur í skyn, hefur verið aðgengileg á netinu í mörg ár:

    http://www.banque-france.eu/gb/supervi/telechar/2000_deposit.pdf

  11. 11 Jón Þór

    Sæll “lesandi”

    Takk fyrir þetta, þá veit ég að ég hef rangt fyrir mér.
    kv.
    Jón Þór

  12. 12 valsol

    Davíð kosinn heimsins versti seðlabankastjóri. Svo eru 3000 manns búnir að skora á manninn að koma aftur í pólitík. 3000 klepptækir hálfvitar á íslandi!

    Seðlabanki Íslands var trúr verndarahlutverki sínu við svikamyllu fjármálafyrirtækja
    löngu eftir að dauði hennar var fyrirséður. Frá ársbyrjun 2008 dældi bankinn út
    fjármunum sem yfirskyggja öll fjárlög íslenska ríkisins í þessa deyjandi myllu, án
    skilyrða gegn ónýtum veðum í myllunni sjálfri ! Þetta voru gjafagjörningar.
    Þá fyrst þegar Seðlabankinn sprakk, varð sjálfur tæknilega gjaldþrota, sjálfur í
    gríðarskuld við ríkissjóð, þá sprakk líka svikamyllan, sem á honum nærðist .
    (Baldur Andrésson, 2009).

  13. 13 Sigurjón Sveinsson

    Seðlabankinn fór ekkert á hausinn vegna einhvers hlutverks. Hann fór á hausinn af því að hann lánaði án nokkurra veða, lánaði til greiðslu/gjaldþrota banka. Dabbi setti hann á hausinn og það er réttmæt ábending hjá nafna mínum hér með þetta. Ekki gleyma heldur 200 milljörðunum sem var spýtt inn i Sjóð 9 á kostnað skattborgara. Munum, það voru sárafáir einstaklingar sem áttu langmestu innistæðurnar þar. Það væri gaman að vita hverjir þeir eru.

    Það er svo eitt, Sigurjón, sem þú gætir kannski kíkt á. Það sagði mér afskaplega lögfróður og reyndur bankalögmaður að það væri í raun ekkert mál fyrir okkur að borga Icesave. Því það stendur hvergi í alþjóðlegum lögum að fólki beri að borga eitt né neitt í einni eða annarri mynt. Þannig á að vera hægt að prenta krónur og borga Bretum og Hollendingum í krónum og þeir bara skipta yfir í pund og evrur. Reyndar pompar gengið aðeins við þetta en hei, við getum borgað.


Leave a Reply