Leita að foringja
Hugur er í Samfylkingarfólki í Reykjanesbæ. Afleit fjárhagsstaða bæjarins eflir flokksfólk, þar sem það sér fram á sóknarfæri í kosningunum eftir tæpt ár. Víst er að staða Árna Sigfússonar bæjarstjóra hefur veikst.
Í undirbúningi Samfylkingarsinna er leit að nýjum oddvita. Efst á lista margra félaga er Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, en hún mun ekki hafa svarað tilkallinu.
Síðast var vonlítið sameiginlegt framboð minnihlutaflokkanna með þeim árangri að Sjálfstæðismenn náðu sjö fulltrúum af ellefu.
„Það er vonandi að það verði komin fjarlægð á bankamálið,“ sagði viðmælandi aðspurður um hvort starf Eddu Rósar hjá Landsbankanum kynni að vinna gegn henni.
Fyrir þá sem ekki vita, þá er Edda Rós dóttir Karls Steinars Guðnasonar sem var krataforingi í Keflavík í langan tíma.
Filed under: Stjórnmál | 6 Comments
Leita
-
Þú ert núna að vafra í Sprengisandur sarpi bloggs.
Enda er Edda Rós nýbúin að ráða sig sem starfsmann AGS á Íslandi. Verður að fact-check-a betur áður en þú skrifar
Smá ábending Sigurjón. “Að svara kalli eða ákalli” heitir það en ekki “svara tilkalli”.
Hvað sem þessum pælingum líður þá er klukkan orðin 17:00 á sunnudegi og ekkert bólar á nýjasta þætti Sprengisands, sem á að vera á heimasíðu Bylgjunnar.
Einhver snillingurinn hjá 365 hefur sett viku gamlan þátt inn í staðinn fyrir þáttinn í dag.
Þú verður að bæta úr þessu Sigurjón, hlustendum þínum til dægradvalar og skemmtunar.
Þetta fólk sem “vann” við greiningadeildir bankana fyrir hrun,eru þau með hreinan skjöld.?? Það voru birt viðtöl í sjónv. og flr. og allt í glimrandi uppsveiflu..!! En allt í einu hvissbang og allt hrundi…einhver sem ekki var að vinna sína vinnu eða…?? Pæling.
Björn.
Það yrði glæsilegt að fá Eddu Rós. Hún var með rúmar 7 milljónir á mánuði í Landsbankanum og talaði um alltaf um í öllum sjónvarps og útvarpsþáttum að allt væri í himnalagi og mesta lagi væri um tímabunda lausfjárkreppu að ræða. Hún ætti kannsi að skila eitthvað af þessum launum sínum sem greinilega voru rúmalega raunsarleg við mið er tekið af greiningar hæfileikum hennar. Því greinilega gat hún ekki séð svo mikið sem viku fram í tímann. Hún,Ingólfur Bender og fleiri greinendur sem voru á ofurlaunum við að ljúga af okkur sauðheimskum almenningi sem trúðum þessum ofurlaunu “vitringum” sem voru svo ekkert meira en klappstýrur fjársúkra auðmanna.
‘Ég er svo undrandi á einhverjum að láta sér detta í hug að fá Eddu Rós sem topp-personu í pólitíkina í Reykjanesbæ. Vegna hvers? Jú bæði hún og Yngvi Kristins
lýstu því yfir að ÞAU VISSU E K K E R T um sukkið í Landsbankanum, en komu
þó fram mánuð eftir mánu- löngu á undan hruninu og sögðu okkur- vitlausum
almenningi- að ALLT VÆRI Í LAGI. Þetta fólk á að grafa í eitt skipti fyrir allt og
um 40 – 50 með þeim. Alls ekki nærri peningum eða pólitík TAKK. Í vígahug-´játakk