Arnar Bjarnason, eigandi Reykjavík Invest, sem átti að fá keyptan tveggja og hálfs prósentahlut í Byr, af skilanefnd Landsbankans, er einnig skráður forsvarsmaður fyrir félagið Reykjavík Capital. Hann seldi Sparisjóði Mýrasýslu það félag, og Sparisjóðurinn mun hafa tapað drjúgt á þeim viðskiptum. Síðar seldi Sparisjóðurinn félagið sem þá hét NordVest Verðbréf hf. Tapið af viðskiptunum varð eftir í Borgarfirði.
Arnar hefur stofnað annað félag undir fyrra nafninu, það er Reykjavík Capital. Þar er Lárus Finnbogason, skilanefndarformaður í Landsbankanum, endurskoðandi rétt einsog í Reykjavík Invest. Arnar Bjarnason er framkvæmdastjóri og prókúruhafi NordVest Verðbréf, jafnt og hann var þegar félagið var í hans eigu, áður en hinn lánlausi Sparisjóður keypti og tapaði og einsog hann var þegar félagið hét Reykjavík Capital einsog hið nýja félag Arnars heitir nú. Í stjórn NordVest eru; Þórarinn Ingi Ólafsson, Róbert Agnarsson, Þórbergur Guðjónsson, Sigurður Ingi Leifsson, Einar Þorvaldur Eyjólfsson og Óðinn Sigþórsson. Kunnugir segja þá tengjast Kaupþingi og Sparisjóði Mýrarsýslu.
Ummæli
Síbrotamenn með sterkann brotavilja.
http://www.dv.is/frettir/2009/4/30/kululanskongur-kaupir-verdbrefafyrirtaeki/
Ég bara skil ekkert í skilanfdunum og þeim semráða bankastjóra nýju bankan —flest nýafturbata af störfum í gruggugu andrúmi síðustu daga Bankmanna eða svo nefndust þeir að sögn en pabbi hefði líklega nefnt þá öðruvísi enda að vestan.
Miðbæjaríhaldið
Hver á Reykjavík Capital í dag Sigurjón? Ertu ekki blaðamaður?
Ég sé eftir að hafa verið dónaleg við þig, en ég er orðin þreytt á að horfa upp á að við eigum bara Egil Helgason og Jónas Kristjánsson á vaktinni fyrir okkur.
Aðalfréttin er hverjir keyptu Reykjavík Capital og hvenær þeir keyptu það.
Það er áhugavert að skoða yfirlit yfir starfsmenn Sparisjóðsins en þetta er allt meira og minna Bifrestingar sem hafa verið í námi á Bifröst. Þórarinn og Einar voru nemendur á sama tíma á Bifröst. Sparisjóðsstjórinn Bernhard er fyrrverandi nemandi og forseti viðskiptadeildar Bifrastar….
Arnar hefur verið að kenna á meistarstigi á Bifröst.
Talandi um sterk tengsl…
Það er eins gott að standa vaktina og sjá hvað þessir andsk…. eru að gera!
Ertu viss um að þessi frásögn sé alveg rétt? Ég held að þetta hafi verið eigendur Reykjavik Capital (áður Nordvest) þegar félagið var selt SPM http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2006/12/12/nyir_eigendur_ad_meirihluta_hlutafjar_i_nordvest/
Arnar var hins vegar gerður forstjóri félagsins þegar SPM keypti það og hirti síðan nafnið þegar því var slitið samkvæmt þessari frétt http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/thrir-fyrrum-kaupthingsmenn-kaupa-nordvest-verdbref-adur-reykjavik-capital/
Það er nú ekki þannig að ég vilji sérstaklega standa upp og verja þessa menn. En mér finnst þó mikilvægt að menn segi satt og rétt frá, sérstaklega fjölmiðlamenn.
Með vinsemd og virðingu,
B