
Átök eru um Byr. Tvær fylkingar takast á um yfirráðin. Önnur fylkingin er í sérstöku og nánu sambandi við skilanefnd Landsbankans, en skilaefndin hefur með óþekktum hætti komið vænum eignarhlut í Byr í hendur eins frambjóðenda til stjórnar, Arnars Bjarnasonar.
Arnar á fjárfestingarfélag sem heitir Reykjavík Invest. Rúmlega tveggja og hálfs prósents hlutur í Byr hefur verið færður frá gamla Landsbankanum yfir til Reykjavík Invest. Hluturinn kostar mikla peninga, jafnvel hundruðir milljóna. En hvað býr að baki.
Aðalfundur Byrs er á miðvikudag. Í lögum sjóðsins segir að engin geti farið með meira atkvæðavald á aðalfundi en fimm prósent. Landsbankinn á sjö og hálft prósent, sem segir að þriðjungur hlutar Landsbankans myndi ekki gagnast við atkvæðagreiðslu á aðalfundi, þar á meðal til stjórnarkjör. Landsbankinn gamli, sem stýrt er af skilanefndinni, hefur séð til þess að allur hlutur Landsbankans nýtist við stjórnarkjörið. Reykjavík Invest fer með þriðjungshlut bankans, sem fyrr segir.
Lárus Finnbogason er formaður skilanefndar bankans, og ekki bara það, hann er einnig endurskoðandi Reykjavík Invest. Enn og aftur kemur upp mál þar sem efasemdirnar hrannast upp.
Er Lárus og skilanefndin að færa til hluti okkar almennings, hluti sem við vorum neydd til að taka yfir sökum aðgerða óreiðumanna, til að hafa áhrif á stjórnarkör í fyrirtæki úti í bæ? Og ef svo er, í hvers umboði? Ríkisstjórnarinnar?
Reynist grunur um að hér sé verið að gera annað en það sem ætlast er til í endurreisn samfélagsins er ljóst að það mun draga dilk á eftir sér. Ef sú er raunin að verið sé að færa til stóra hluti án þess að greiðslur komi á móti eða sérstöku lán séu veitt, kallar það á rannsókn á störfum skilanefndar Landsbankans, og jafnvel hinna bankanna líka
Þjóðin hefur fengið nóg, meira en nóg, að vafasömum fyrirgreiðslum, kunningjasamfélaginu og ekki síður þegar gamblað er með okkar peninga, það litla sem við höfum upp í mikla tjónið.
Meira á morgun.
-
Síður
-
Flokkar
-
Sarpur
Blogroll
-
RSS Feeds
-
Meta
Ummæli
Á 100 daga listanum er að finna eftirfarandi:
“Ákvörðun um eigendastefnu og eignarhald bankanna tekin í ríkisstjórn. ”
Á ekki að selja búta úr bönkunum að vel hugsuðu máli, og í opnu útboði?
Það má bæta því við, að Forsætisráðherra segir í fréttum í kvöld, að FME eigi að líta á málið.
Og að skilanefndum eigi að treysta.
Ég fékk 2007 bragði í munninn við að lesa þessi viðbrögð.
Það er eins og mig minni að “regluverkið” hafi brostið, sé rétt farið með orð fv. forsætisráðherra sem hrökklaðist frá völdum fyrr í vetur.
Hefur regluverkið verið lagað, þannig að “traust” sé málið? Þannig að FME hafi farið í gegnum þá naflaskoðun sem nauðsynleg er?
Það hlýtur að vera hægt að komast að því núna, í þessari viku, hvernig þetta mál er vaxið. Ef það er eins og það lítur út fyrir að vera, þá á viðkomandi ekki að fá að koma nálægt störfum fyrir almenning, okkur varðar ekki um hvort einkaaðilar eða vinir treysta honum áfram. Er ekki komið nóg!!!! Það er enn fullt af viðbjóðslega spilltu pakki að vinna fyrir almenning. Manni hreinlega klýgjaði við bankastjórunum í Kastljósi um daginn, ekki vegna þess sem þau sögðu heldur vegna sögu þeirra. Einn lét ráða sig úr skilanefnd (Ásmundur), annar kemur úr fjármálafyrirtæki sem honum tókst nánast að drepa (Finnur) og sá þriðji slapp við að standa skil á skuldbindingum sínum (Birna). Og svo vil ég minna á að riftunartíma gerninga v/lána starfsmanna úr bönkunum. Eiga menn að komast upp með að færa eignir/skuldir í einkahlutafélög og eignir á maka, verður ekki að lengja þennan 18 mánaða frest til riftunar? Þetta tímabil er að tikka út. Eða á þetta pakk bara allt að sleppa á tæknifeilum eins og olíufélgalýðurinn?
Trackbacks
[...] Spilltist skilanefndin? 11maí09 [...]