Stóru bitarnir

Fyrir fáum vikum birtist þessi færsla hér á síðunni. Ágætt er að hafa þetta til upprifjunar, nú þegar verstu spádómar um gjaldþrot stórra fyrirtækja eru að rætast. En spennan er meðal lögmanna um hverjir fá feitu bitanna þegar skipa þarf skiptastjóra með gjaldþrota fyrirtækjum. Erlendur Gíslason á Lógos hefur verið skipaður skiptastjóri í þrotabúi Baugs. Eins og dæmin sanna geta skiptastjórar ráðið miklu þegar þeir selja búin, jafnvel þekkist að þau eru seld að fullu eða að hluta til aftur til þeirra sem ráku þau í þrot. Þannig að eigendurnir fá fyrirtækin til baka á lágu verði en sleppa við skuldirnar.

Í fámennissamfélaginu okkar, fríríkinu Íslandi, eru tengsl viðskiptalífsins og lögmanna oft hrópandi. Eins tengjast stærstu lögmannsstofurnar líka stjórnmálaflokkunum.
Lógos er einn þessara stofa. Lógos var með skrifstofur í London og Kaupmannahöfn þar sem unnið var í þágu útrásarvíkinga, ekki síst fyrir Baug. Þar fer fremstur Gunnar Sturluson, sonur Sturlu Böðvarssonar fyrrverandi þingforseta. Gunnar er aðstoðarmaður Stoða í greiðslustöðvuninni. Fullyrt er að stofan hafi góð tengsl við stjórnsýsluna.
Jakob Möller verjandi Tryggva Jónssonar í Baugsmálinu. Hann hefur góð tengsl í stjórnsýsluna gegnum Sjálfstæðisflokkinn.
Árni Vilhjálmsson hefur annast samninga, fyrir erlenda fjárfesta, varðandi stóriðjur hér á landi. Árni er sonur Vilhjálms Árnasonar sem var aðallögmaður Íslenskra aðalverktaka. Góð tengsl í stjórnsýsluna gegnum Framsóknarflokkinn.
Othar Petersen er helsti lögmaður Íslenskra aðalverktaka. Tengdur Sjálfstæðisflokknum.


Lex lögmannastofa hefur þjónað bæði bönkum og útrásarvíkingum. Þar fer fremstur Helgi Jóhannesson. Helgi hefur unnið mikið fyrir Baug og tengd fyrirtæki og bar síðast skiptastjóri BT.
Kristín Edwald hefur náin tengsl við Kristínu Jóhannesdóttur og var í stjórn gamla Glitnis. Vinnur nú fyrir Sjóvá. Tengist Sjálfstæðisflokknum.
Jóhannes Sigurðsson er nú sérfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík, en hefur lengst af unnið fyrir Wernersbræður.
Aðalsteinn Jónsson var aðallögmaður gamla Glitnis. Vann einnig hjá Straumi. Hann mun hafa mikil tengsl við Lex þar sem faðir hans, Jónas Aðalsteinsson er meðal helstu eigenda stofunnar.
Bjarni Benediktsson og Sigurður Kári Kristjánsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, störfuðu á Lex áður en þeir snéru sér að stjórnmálunum.
Karl Axelsson fyrrum sameigandi Jóns Steinars Gunnlaugssonar. Hefur unnið talsvert fyrir stjórnvöld, einkum meðan Davíð Oddsson var þeim megin borðsins.
Þórunn Guðmundsdóttir er eða hefur verið persónulegur ráðgjafi Björgólfs Guðmundssonar.


Fulltingi lögmannsstofa hefur unnið mikið fyrir Finn Ingólfsson, Þórólf Gíslason, Helga S. Guðmundsson, Ólaf Ólafsson, Existu og fleiri félög sem tengjast þessum hópi.
Kristinn Hallgrímsson er fremstur á þessari stofu. Meðal félaga sem hann vinnur fyrir eru Gift og Goði.
Óðinn Elíasson er félagi Finns Ingólfssonar í hestamennsku ásamt Þorgeiri Örlygssyni, dómara við Eftadómstólinn í Lúxemborg, sem er og vinur Tryggva Gunnarssonar, umboðsmanns Alþingis og nefndarmann í rannsóknarnefnd Alþingis. Sagt er að Óðinn reki einnig innheimtufyrirtæki sem rukkar fyrir VÍS.


Mörkin lögmannstofa, en þar er fyrirliði Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og er einnig sagður lögmaður Ögmundar Jónassonar alþingismanns. Gestur er sagður tengdur Framsóknarflokki, Samfylkingu og Vinstri grænum.Systir hans er Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Neskaupstað, og fyrrum einn nánasti samstarfsmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Gestur stofnaði stofuna með Hallgrími Gestssyni, syni Geirs Hallgrímssonar, fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins og ráðherra.
Einar Þór Sverrisson hefur unnið mikið fyrir Jóhannes Jónsson og Baug.


Landslög lögmannsstofa. Jón Sveinsson var aðalmaður þar. Hann var áður aðstoðarmaður Steingríms Hermannssonar og hefur unnið mikið fyrir flokkinn. Hann var formaður framkvæmdanefndar um einkavæðingu og seldi sjálfum sér Íslenska aðalverktaka sem Hæstiréttur hefur dæmt ólögmæta.
Á stofunni starfa einnig Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Garðar Garðarsson. Vilhjálmur hefur tengst Samfylkingunni og Garðar, sem er meðal annars formaður kjaranefndar, er sagður náinn Sjálfstæðisflokki.


Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur er nefnd til. Ólafur Garðarsson er skiptastjóri gamla Kaupþings, Steinar Guðgeirsson er í skilaefnd banka.
Guðrún Brynleifsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Seltjarnarnesi. Er sögð vera vinkona Þorgerðar Erlendsdóttur héraðsdómara sem mun meðal annars úthluta þrotabúum til lögmanna.



Post a comment or leave a trackback: Trackback URL.

Ummæli

  • Rómverji  On mars 13, 2009 at 3:12 pm

    Því segi eg Borgarahreyfingin – þjóðin á þing”

    XO

  • p  On mars 13, 2009 at 5:22 pm

    Á Logos er Bjarnfreður Ólafsson, skattasérfræðingur, og helsti lögmaður þeirra sem sóttu í skattaskjólin, hann vann t.d. mikið fyrir Kaupþing, sem á helstu veðin í þrotabú Baugs.

    Sveinn Andri Sveinsson, stórvinur Guðlaugs Þórs, er líka á Lögfræðistofu Reykjavíkur og Guðrún Helga Brynleifsdóttir, bæjarfulltrúi framsóknar á Seltjarnarnesi, tengdamóðir Ágústs Ólafs.

    Á Fulltingi starfar líka Anton Björn Markússon, Arnar Antonssonar, fyrrverandi borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins en nú yfirmanns Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu.

    Ragnar h. Hall er í Mörkinni með Gesti Jónssyni og hefur unnið mikið fyrir Baug og tengd fyrirtæki og skrifað grienar til stuðningi Baugs í blöð, hann óskaði t.d. eftir framlengdri greiðslustöðvun fyrir Baug.

  • Alma Guðmundsdóttir  On mars 14, 2009 at 1:56 pm

    Þessi samantekt þar einnig að birtast á fréttavef Eyjunnar!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.