Stjórnendur Kaupfélags Skagfirðinga hafa í mörg horn að líta. Þeir tengjast persónulega mörgum fjárfestingarfyrirtækjum sem aftur tengjast Kaupfélaginu. Flókið? Já. En skoðum nánar. Hinn landsfrægi Þórólfur Gíslason er kaupfélagsstjóri og aðstoðarkaupfélagsstjóri er Sigurjón Rúnar Rafnsson. Eitt af helstu fyrirtækjum Kaupfélagsins er Fisk Seafood þar sem Jón Eðvald Friðriksson er forstjóri. Forleikurinn er á enda.
Sagan byrjar í fyrirtæki sem heitir AB 48 ehf. Reyndar hefur verið skipt um nafn á félaginu, og það heitir nú; Fjárfestingafélagið Fell ehf. Stjórnarmaður er bara einn, Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri. Á árinu 2007 var bókfært verð félagsins var einn milljarður króna og eigið fé var tíu milljarðar. Helst eign AB 48 ehf. er AB 50 ehf.
AB 50 ehf. á í Straumi Burðarás. Eigið fé var tæpur milljarður. Stjórnarmaður er bara einn, Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri.
Næsta félag er AB 26 ehf. Aðaleign AB 26 ehf. er tæplega helmingshlutur í AB 48 ehf. Eigið fé var 5,4 milljarðar og bókfært verð einnig. Stjórnarmaður er bara einn, Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri.
Næst kemur að þjóðþekktu fyrirtæki, Hesteyri ehf. En það félag er hluti af S-hópnum, hópnum sem fékk Búnaðarbankann einsog frægt er. Meðal eigna Hesteyrar ehf. er AB 26 ehf. Bókfært verð er 5,4 milljarðar. Stjórnarmenn eru Jón Eðvald Friðriksson, forstjóri Fisk Seafood, Ólafur Kristinn Sigmarsson og Stefán Guðmundsson fyrrverandi alþingismaður.
Þá er komið að Fisk Seafood, þar sem Jón Eðvald er forstjóri. Fisk Seafood á Hesteyri. Og þá kemur að Þórólfi Gíslasyni og Kaupfélagi Skagfirðinga. En Kaupfélagið á Fisk Seafood, sem á Hesteyri, sem á helming í AB 26 ehf., sem á AB 48 ehf., sem á AB 50 ehf.
Hinn hlutinn /
Eigendur AB 48 ehf. sem var nefnt að ofan eru AB 26 ehf. og FS3 ehf. Hér kemur nýtt félag, FS3, og leggurinn tekur breytingum. Eigið fé eru 5,4 milljarðar og þrír sitja í stjórn. Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri, Helgi S. Guðmundsson, sem er einn helsti leikmaður S-hópsins, og Ólafur Friðriksson.
Fjárfestingarfélagið EST ehf. er eini eigandi FS3 ehf. Og eigandi Fjárfestingarfélagið EST ehf. er Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar.
Næst skulum við skoða fyrirtæki sem heitir Gilding. Tveir sitja í stjórn, kaupfélagsstjórinn Þórólfur og aðstoðarkaupfélagsstjórinn Sigurjón. Gilding á þriðjungshlut í Síðasta dropanum ehf. sem kemur við sögu síðar. Þá er komið að Fjárfestingafélaginu Sveinseyri ehf. Þar sitja í stjórn títtnefndur Sigurjón Rúnar aðstoðarkaupfélagsstjóri og Jón Eðvald Friðriksson forstjóri Fisk Seafood. Sveinseyri á hlut í AB 48 ehf. Síðasta dropinn á allt hlutafé Sveinseyrar ehf.
Enn er haldið áfram. Matróna ehf. er eitt félaganna. Eigendur þess eru félög sem ég skýri betur á eftir, en þau heita Háahlið 2 ehf. og Háahlíð 3 ehf. Þau félög, það er Háahlið 2 og Háahlið 3 eiga líka félagið Gullinló ehf. Í stjórn Gullinlóar sitja kaupfélagsstjórarnir báðir, Þórólfur og Sigurjón. Gullinló á síðan hlut í Mundaloga ehf. ásamt Matrónu ehf. Skýrist á eftir. Kaupfélagsstjórarnir sitja í stjórn Mundaloga.
Og næst er það Síðasti dropinn ehf. Þar skipa stjórn Sigurjón aðstoðarkaupfélagsstjóri og Jón Eðvald forstjóri. Eigendur Síðasta dropans eru Háahlíð 2 ehf. Háahlíð 3 ehf. Háahlið 7 ehf. og Gilding ehf. Síðasta dropinn á Sveinseyri sem áður var getið um.
Háahlíð 2 ehf. er einkafirna Þórólfs kaupfélagsstjóra og ber heiti heimilis hans. Félag Þórólfs á helmingshlut í Matrónu, helmingshlut í Gullinló og tæplega fjórðung í Síðasta dropanum auk hluta í öðrum félögum sem tengjast ekki þessum kapli.
Háahlið 3 ehf. er einkafirma Sigurjóns Rúnars Rafnssonar aðstoðarkaupfélagsstjóra. Félag Sigurjóns á helmingshlut í Matrónu, helmingshlut í Gullinló og tæplega fjórðung í Síðasta dropanum auk hluta í öðrum félögum sem tengjast ekki umfjölluninni.
Háahlið 7 ehf. er einkafirma Jóns Eðvalds Friðrikssonar forstjóra Fisk Seafood. Það félag á meðal annars tæplega fjórðungshlut í Síðasta dropanum.
Það sem vekur athygli er að þeir þremenningar tengjast í gegnum fjölda félaga og þegar kapallinn er rakinn endar hann í Kaupfélaginu þar sem þeir hefur verið treyst fyrir félagi í almanna eigu. Af lestri greinarinnar vakna meðal annars spurning um hvort rétt sé að helstu stjórnendur Kaupfélagsins séu um leið viðskiptafélagar þess. Hin mikla flækja, sem hér hefur verið gerð tilraun til að rekja, gerir öllum erfitt fyrir að rekja hver er hvers og hvur er hvurs.
Byggt á ársreikninum áranna 2006 og stundum 2007.
Ummæli
Uuuu, Sigurjón skilurðu það sem þú skrifar. Maður tapar þræði mjög snögglega í þessu hjá þér. En ég býst við að það sé tilgangur Jóns, Þórólfs og nafna þíns. Fela slóðina, er það ekki málið? Kemur þessi flétta eitthvað við sögu Giftar?
Sæll
Þetta er góð skýring, þó hún sé flókin. Hún gefur yfirsýn yfir hvernig þetta flækjustig hefur verið. Meira svona.
Kv.
Sveinbjörn
Bara svona kapall segir manni að einhver sé að hafa rangt við einhversstaðar. Er einhver önnur ástæða fyrir svona rugli? Held ekki.
Myndin er af Helga S. Guðmundssyni en ekki af Þórólfi Gíslasyni.
Er þetta ekki svona áramóta grín eða hvað? Alla vega vildi ég ekki búa í Háuhlíð!
Veit að myndin er af Helga S. Guðmundssyni. Átti ekki mynd af Þórólfi og Helgi kemur við sögu.
-sme
Svona er það þegar menn ákveða að gerast hirðir fjár sem allir telja að sé fyrst og fremst í þágu samfélagsins sem það tilheyrir en ekki til gróðabralls fjárglæframanna. Hvar er Pétur Blöndal núna með áróðurinn gegn sameignar- og samvinnufélögum, sem búa víst yfir féi án hirðis? Heyrist ekki mikið í honum núna þegar kemur í ljós að hirðarnir drifu í að slátra öllu fénu og veðsettu svo allat upp í topp áratugi fram í tímann þannig að ekkert stendur eftir nema rjúkandi rústirnar. Samanber téð félag Gift sem var gullegg S-hópsins og átti aldeilis að spenna upp virði á áður en því yrði skipt á milli þeirra makkeranna. Og nú er ekkert eftir nema skuldir vegna veðsetninga. Þórólfur og félagar reyndu að láta sig hverfa en þeir bera samt ábyrgð á þessu.
p.s. Guðsteinn nennti ekki að lesa í gegnum þetta en nennti samt að kommenta. Sem er ein helsta meinsemd bloggsins, allir til í að tjá sig en enginn nennir að lesa það sem verið er að tala um.
Sú spurning sem vaknar hjá mér á þessu stigi er þessi: hvaðan koma peningarnir í upphafi? Þarf ekki að athuga það.
Hvað ætli Geirmundur gjaldkeri Valtýsson segi um málið?
Kaupfélagsstjóraferil Þórólfs þarf að skoða allt frá Þórshöfn, Ólýgin sagði að ýmislegt þaðan hafi verið þaggað niður
Bíddu, ég er ekki að fatta þetta! Hvað er málið? Er þetta eitthvað ólöglegt eða? Eina sem ég veit er að öll fyrirtækin sem eru nefnd þarna standa dj…. vel, og það þrátt fyrir yfirstandandi kreppu! OG… þetta eru fyrirtæki sem byggð eru að mestu leiti á framleiðslu á landsbyggðinni, mannauði fyrirtækjanna og fjárfestingum tengdum þeim, m.a. til að tryggja ráðandi eignarhluti atvinnufyrirtækjanna í heimabyggð, sem tryggir atvinnu okkar á landsbyggðinni! Ég er sjálf ein af nokkur hundruð óbreyttum starfsmönnum hjá K.S. og þakka bara fyrir það, þar sem maður þarf ekki að óttast fjöldauppsagnir eins og hjá allt of mörgum fyrirtækjum á Íslandi í dag!
Ég hallast að því að trúa að þessi grein sé byggð á annarlegum hvötum eins og öfund, illgirni eða 101 Baugsæxlis-villusýn.
Hér eru, í allrar mesta lagi, hálfköruð og að mér sýnist fljótfærnislega framsett skrif í gangi, til þess eins, er virðist, að skaða orðspor vel rekinna fyrirtækja og mannorð fólks á landsbyggðinni! Hvernig væri að líta sér AÐEINS nær???
EE: Finnst þér semsagt eðlilegt að mennirnir sem þarna hafa magnað upp eign fyrir sjálfa sig með stuðningi hins raunverulega fjár sem KS leggur til, geti hirt bæði arð og mögulegt söluverðmæti hlutanna sem þeir greiddu aldrei fyrir nema með „almannafé“ KS? Þú ættir kannski að lesa þetta yfir aftur og velta fyrir þér hvar Þórólfur og félagar útveguðu sér 2-5 milljarða hver til þess að jafna við hlut KS. Með fyrirtækjaflækjunni hefur þeim einmitt tekist að magna upp innistæðulausa „eign“ fyrir sjálfa sig með bakhjarl í peningum KS sem þeim er treyst fyrir. Fyrst þú nefnir Baugsæxlisvillusýn þá er rétt að benda þér á að þetta er nákvæmlega það sem Baugur og félagar eru ásakaðir um að hafa gert: Búið til platpeninga með flóknum eignatengslum og eignaflutningi milli félaga, nákvæmlega eins og SME lýsir hér. „Hvernig væri að líta sér AÐEINS nær???“
þrna er verið að reyna fela slóð peninga og eigenda, það er ljóst. Í gegnum ógrynni af eignarhaldsfélögum reyna þeir að fela slóð stuldar og sjálftöku.
Þessir peningar koma frá almenningi í gegnum Samvinnutryggngar og einkavæðingu á Búnaðarbankanum, sem þeir nýttu svo í eigin þágu. Það ætti að henda þeim í rimlana eki strax en núna.
Velti því reyndar fyrir mér hvar Finnur Ingólfs var ekki minnst í þessu öllu saman, yfirglæpamaður.